Þessi er hollur og heillandi. Ekki er verra að vinna svona rétti á wok-pönnu. Gæti verið tilvalinn sem öðruvísi forréttur.
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 629 151 100
Fita 9 347 84 56
Kolvetni 13 214 50 33
Prótein 4 67 16 10
Trefjar 0
Undirbúningur 5 mín
Matreiðsla 25 mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni:
100 g hrísgrjón, brún Uncle Ben´s
100 g hrísgrjón, hvít Uncle Ben´s
100 g sveppir
100 g villihrísgrjón, Uncle Ben´s
100 g vorlaukur
50 g smjör
8 msk sýrður rjómi
4 msk laxahrogn
2 tsk salt
Undirbúningur
Skerið vorlaukinn og sveppina smátt.
Matreiðsla
Sjóðið hrísgrjónin, hverja tegund fyrir sig, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum. Hitið smjörið á pönnu og steikið vorlaukinn og sveppina. Setjið síðan öll hrísgrjónin á pönnuna, bætið við salti og blandið vel. Skiptið þessu á diska og setjið sýrðan rjóma og hrogn ofan á.
Hollráð
Með þessum rétti er mjög gott að hafa hvítlauksbrauð.
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe