Ofnbakaður hrísgrjónaréttur með reyktum lax og humar. Hægt að nota bæði sem forrétt og aðalrétt.
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 910 218 100
Fita 11 396 96 44
Kolvetni 13 217 51 23
Prótein 9 154 36 17
Alkóhól 144 34 16
Trefjar 0
Undirbúningur 5 mín
Matreiðsla 90 mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni: Fyrir hve marga: 8
Deig
100 g hveiti
25 g smjör
2½ dl hrísgrjón, rjómasoðin, Uncle Ben´s
2½ dl rjómi
1 stk egg
½ dl hvítvín
¼ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
Fylling
4 msk smjör
3¾ dl hrísgrjón, rjómasoðin Uncle Ben´s
3¾ dl humar, smjörsteiktur
3¾ dl lax, reyktur
Deig
Bræðið smjörið á pönnu. Kælið. Sigtið hveiti í skál ásamt lyftidufti og salti. Vætið í með eggjunum og rjómanum. Bætið að lokum hvítvíninu og hrísgrjónunum út í.
Fylling
Smyrjið að innan 6-8 bökunarmót. Blandið saman rjómasoðnum hrísgrjónum, söxuðum, léttsteiktum humar og reyktum laxi. Setjið í bökunarmótin. Hellið deiginu yfir. Bakið við 200°C í 25 mínútur og síðan við 180°C í 20 mínútur.
Framreiðsla
Ef nota á réttinn sem aðalrétt þá er gott að bera hann t.d. fram með hrásalati. Diskurinn, sem að sjálfsögðu er heitur, er skreyttur með steinselju. Gott er að bera hann fram með hvítvíni. Ef við hins vegar kjósum að nota réttinn sem forrétt þá sleppum við salatinu.
Hollráð
Til gamans má geta að tilvalið er að nota þennan rétt sem glaðning á gamlárskvöld.
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe