Heitt og gott nasl. Gott í salöt, með öllum fiski, köldum drykkjum eða með ferskum kryddjurtum sem forréttur.
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 1771 430 100
Fita 45 1673 407 95
Kolvetni 2 42 10 2
Prótein 3 56 13 3
Trefjar 1
Undirbúningur 80 mín
Matreiðsla mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni: Fyrir hve marga: 10
7½ dl ólífuolía (ekki hágæða)
20 stk habanero chillipipar eða smápaprikur
5 stk McCormick Bay lauf
2 dl ansjósur
2 dl kapers
ólífuolía til að geyma í
Aðferð
Skerið chilli/smáparikurnar í tvennt og fræhreisnsið þau/þær, en skiljið stilkana eftir. Þvoið þau með köldu vatni og skellið í eldfast fat ásamt bay laufunum. Hellið ólífuolíu yfir og bakið við 180°C í 30 mín.
Látið chilli/smáparikurnar kólna í 30 mín. Takið aldinin úr olíunni og hellið olíunni í flösku, lokið og geymið. Þessi olía er núna orðin krydduð og tilvalin á pizzur, með ostum, í salöt, eða eins og hugurinn girnist.
Grófsaxið ansjósur og kapers. Fyllið hvern og einn helming með þessu og raðið í loftþétta krukku. Hellið olífuolíu yfir þannig að fljóti yfir. Geymið í ískáp fram að framreiðslu.
Framreiðsla
Þetta er gott að bera fram með grófsöxuðu rocketsalati, basli og steinselju í balsamic ediki, annað hvort öllu saman eða einu.
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe