Þetta er aðalpastasalatið í bænum; mjög gott sem forréttur, léttur aðalréttur eða meðlæti. Athugið að salatið þarf að kæla í ísskáp í a.m.k. 4 klst. áður en það er borið fram.
Hagnýtar upplýsingar:
Næringargildi miðað við 100 g
g kJ kkal %
Orka 791 188 100
Fita 8 280 68 36
Kolvetni 25 433 102 54
Prótein 5 77 18 10
Trefjar 3
Undirbúningur 15 mín
Matreiðsla 10 mín
Einfaldleiki Meðal
Hráefni: Fyrir hve marga: 8
1 kg grænmeti að eigin vali, t.d. brokkólí, gulrætur, rauðlaukur og cherry-tómatar
480 g pasta (fusilli, rotini eða skeljapasta)
240 g ítölsk eða “ranch-style” salatdressing
4 msk McCormick Salad Supreme Seasoning
Undirbúningur
Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakkanum, skolið og látið vatnið leka af því.
Matreiðsla
Blandið saman pasta, salatdressingu og McCormick Salad Supreme Seasoning í stóra skál. Blandið grænmetinu varlega saman við. Setjið í lokað ílát og kælið í ísskáp í a.m.k. 4 klst.
Hollráð
Hrærið í salatinu áður en það er borið fram.
<br><br>******************************
Kíkjið á <a href="http://kasmir.hugi.is/Engel/">síðuna mína</a> og takið þátt í SLÚÐRINU.
Uppfærð = 9. Septembe