Ég veit bara um einn góðan kokkteil sem er óáfengur….
Þú blandar bara eftir þörfum, ekkert sérstakt magn.
Appersínusafi og ananassafi (ég nota brassa)
og bætir svo smá grenadíni í botninn :)
Þetta er mjög gott, og til þess að gera gott betra er hægt að taka tvo diska, hella smá grenadíni á annan og setja sykur á hinn, taka glasið og dífa því í grenadínið og svo ofan í sykurinn og þá færðu svona bleika sykurrönd á glasið ;)
Skal taka mynd af þessu og bæta við þegar ég finn grenadínið ;)
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"