Já ég kann fullt af uppskriftum af heitum réttum. Þessi er til dæmis svakalega góður:
1 dós refried beans
1/2 dós sýrður rjómi
1 krukka salsa sósa
1 avocado þroskaður
4 tómatar
1 rauðlaukur
rifinn ostur
Aðferð: Refried beans er smurt í botninn á eldföstu fati, skerið rauðlauk og tómata í litla bita og setjið yfir baunamaukið. Skerið svo avocado í aðeins stærri bita og bætið ofan á. Hrærið því næst salsa og sýrðum rjóma saman og hellið svo yfir allt saman. Rifinn ostur settur yfir. Hitað við 200°C í 25 mín. Borið fram með nachos. NAMMMMMMMMMM :)