Hæ allir. Ég hreinlega verð að læra að búa til pítusósu, helst eins nálægt pítusósunum frá Vogum eða Gunnari og hægt er. Ég bý erlendis og sakna þess ógurlega að fá ekki pítusósu í samlokur og pítur. Þegar ég var heima í sumar keypti ég sósu sem er að verða búin og nú er ég farin að panikera! Ég hef reynt að búa til sósu með því að fylgja innihaldslýsingunni en hef ekki náð að komast nógu nálægt.
ég veit að þið heima á Íslandi getið farið út í búð og keypt sósu og eruð því kannski ekki að reyna að búa þessa til, en ef einhver getur hjálpað mér, plís plís plís…
kristín