Góðar lakkríssmákökur:

1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
225g mjúkt smjör
2 egg
2 tsk. vanilludropar
3 bollar hveiti
2/3 bolli kakó
1/2 tsk. matarsódi
2 bollar rjómasúkkulaði
1 1/2 bolli Nóa lakkrískurl


Þeytið saman sykur,púðursykur og smjör.Bætið eggjunum í,einu í einu.Síðan vanilludropar og allt hrært saman þar til blandan er orðin ljós og létt.Bætið hveiti,kakói og matarsóda útí og allt hrært saman.Að lokum er brytjað súkkulaði og lakkrískurl sett útí.
Mótaðu kúlur úr deiginu og bakaðu við 180 gráður í 8-10 mín.

Verði ykkur að góðu.