Ég er að reyna að fá sambýlismann minn til að borða innmat, hann er jú ódýr og næringaríkur. Maðurinn fúlsar við öllu saman, lifur-nýru-hjörtu allt ógeð segir sá sæti og pantar sér pizzu.
Nú fór ég á bak við hann og keypti lifur en vantar uppskrift.
Ef þú liggur á einni slíkri líkt og ormur á gulli þá hugsaðu til jólanna og deildu með mér.