7 dl rjómi
200 g Toblerone, saxað
100 g Toblerone, brætt
6 msk sykur
6 stk egg


Aðferð
Aðskiljið eggjarauðurnar frá hvítunum og þeytið þær vel með sykrinum. Blandið brædda Tobleroninu saman við eggjaþykknið. Þeytið rjómann og setjið hann saman við, ásamt saxaða Tobleroninu. Stífþeytið að lokum eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við með sleif. Setjið ísblönduna í form og frystið fram að framreiðslu.

Hollráð
Það getur einnig verið gott að bæta 2-3 msk. af Kahlua líkjör út í ísblönduna