Ég á fullt af uppskriftum af ís:) Hérna er t.d. uppskrift af góðum jarðarberjaís:
70 g sykur
1 stk. egg
4 stk. eggjarauður
4 dl rjómi
250 g jarðarber
2 msk. sykur
1 msk. sítrónusafi
Þeytið egg, eggjarauður og sykur saman, setjið jarðarber í mixer og maukið með sykri og sítrónusafa, blandið varlega saman við þeytinguna með sleikju. Blandið svo þeyttum rjómanum saman við og frystið. Berið fram með súkkulaðisósu, og ískexi!
<br><br>—————–
Málsháttur sem á vel við mig…. Margur verður af aurum api;)