2 bollar hveiti
2 bollar sykur (eða 1 b. sykur og 1 b. púðursykur)
2 bollar kókosmjöl
2 tsk. matarsóti
Þetta er allt hrært saman og þá er bætt við:
250 g smjörlíki
2 egg
Þetta er uppskrift í tvö form, rúmlega helmingnum þrýst ofan í smurt mót, ofan á smurt rabarbarasultu og hinum helmingnum af deiginu dreift yfir sultuna. Bakað við 200°c í ca. 30 mín.
Sá sem margt veit talar fátt