Kjúklingavængir
Skammtar: Fyrir 4
Hráefni:
20-24 stk. kjúklingavængir
300 g Tilda hrísgrjón
1 stk. rauð paprika
1 búnt ný steinselja, söxuð
Kryddlögur
2 tsk. chiliduft
3 tsk. karrí
1 dl sojasósa
2 dl hunang
1/2 dl matarolía
salt og pipar
Meðlæti á spjót
12-16 stk. nýir, stórir sveppir
chilipipar, skorinn í 8 bita
12 stk. cherrytómatar
Þræðið upp á grillpinna og grillið í 2-3 mínútur.
Matreiðsla:
Öllu kryddinu er blandað saman og sett út í olíuna, síðan eru vængirnir settir í kryddlöginn og látnir liggja í leginum í u.þ.b 3 klst. Þá eru þeir grillaðir í 12-15 mín. Snúið þeim reglulega.