ógisslega góður réttur:
Hráefni:
Rúllutertubrauð,
smurostur (beikon eða sveppa eru rosa góðir með)
Skinka, sirka sona hálfur pakki.
Aspas, ein lítil dós
sveppir ein dós
eggjahvítur úr 4 eggjum.
Aðferð:
Smyrjið smurostinum á rúllutertubrauðið. skerið sveppina, aspasinn og skinkuna í litla bita og stráið jafnt yfir brauðið.
Rúllið brauðinu upp og smyrjið stífþeyttum eggjahvítunum utanum svo það lokist alveg.
Bakið við 150 gr. þangað til það verður ljósbrúnt.
Njótið vel =)