RÚLLUTERTA


DEIG KREM
3 egg 125gr smjörlíki
1 ½ dl sykur 1 ½ dl flórsykur
1 msk hveiti 1 egg
2 msk kakó 1 tsk vanilludropar
1 tsk lyftiduft 2 msk kakó

AÐFERÐ
Byrjað er á því að hita ofninn á 250° C. Eggjum og sykri þeytt saman. Öllu þurrefni blandað saman í skál og bætt út í. Deigið látið á ofnplötu og látið bakast í ofninum í 5-6 mínútur eða þar til kakan hefur náð fallegum lit og þá er hún fjarlægð úr ofninum.
Á meðan kakan er að kólna er kremið búið til. Stráið sykri á viskastykki og hvolfið kökunni á það. Smyrjið kreminu á og rúllið kökunni upp. Kælið.
Verði ykkur að góðu