Dingdong sendir inn einfalda Hreindýrauppskrift en nú er Dindong villtur og hættulegur með skotvopnin he he he……
Hreindýrapaté:
Innihald
1,5 kg hreindýrahakk
1,5 kg svínahakk
1,5 kg hökkuð svínafita
100 gr einiber
10 gr sítrónubörkur fínt saxaður
10 gr appelsínubörkur fínt saxaður
20 msk olía
150 gr smjör
250 gr laukur saxaður
250 ml brandy
250 gr pistasíur
500 gr skinka söxuð
500 gr trufflu líki söxuð (Má sleppa)
1 L soð(teningur)
salt
Aðferð
1. Allt innihald er sett í skál og látið standa yfir nótt í kæli.
2. Sett í form og bakað í 15 mín. í 220c° og síðan lækkað niður í 180 gráður og látið bakast þannig í 25 mín.
3. Gott er að búa til Paté brisée deig til að setja meðfram formsins og baka paté í því.
Bon apetit……… :)