Ég slefa við tilhugsunina… Ég hef bara aldrei smakkað jafn góða sósu á ævinni ;)
Her er það sem þú þarft að eiga til þess að búa hana til:

Innihald:
200-250g íslenskt smjör
Heil askja af ferskum sveppum, skornir í smáa bita
1 grænmetisteningur (heill)
1 piparostur skorinn í smáa bita
Heil ferna af matreiðslurjóma


Aðferð:
Bræðið smjörið í potti við mjög lágan hita.
Þegar smjörið er bráðið, setjið þá sveppina út í og látið malla aðeins þar til sveppirnir eru orðnir svolítið mjúkir. Setjið þá grænmetisteninginn út í og látið hann leysast upp. Hrærið vel.
Núna er piparostinum bætt saman við og hann látinn bráðna í þessu öllu saman.
Hræra verður í þessu allan tímann á meðan osturinn er að bráðna svo þetta brenni ekki við.
Að lokum er rjómanum hellt út í smátt og smátt á meðan hrært er í.

Ath. Sjóða þetta við mjög lágan hita og hræra mest allan tímann í … Ef að sósan er mjög þunn þá er hægt að setja smá sósujafnara út í eftir því hversu þykka/þunna þú vilt hafa hana..

Þessi sósa er góð með öllu kjöti. Það tekur ekki langan tíma að gera hana og innihaldið er ekki dýrt, en svolítið fitandi þó! ;)

Verði ykkur að góðu!