Það er nú fátt betra en góður ís. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa ykkur ís-uppskrift
Af eðal jarðarberjaís.
70 g Sykur
1 stk. Egg
4 stk. Eggjarauður
4 dl Rjómi
250 g Jarðarber
1 msk. Sítrónusafi
2 msk. Sykur (í mixer)
Þeytið egg, eggjarauður og sykur saman, setjið jarðarber í mixer (hakkara) og maukið með sykri og sítrónusafa, blandið varlega saman við þeytinguna með sleikju.
Blandið svo þeyttum rjómanum saman við og frystið.
Berið fram með jarðaberjum og ískexi.