Í ár eru rúmlega 70 keppendur skráðir til þátttöku! Keppt er í fimm þyngdarflokkum karla, einum þyngdaflokki kvenna og opnum flokkum karla og kvenna. Þess má geta að þrír meistara síðustu fjögurra ára í opnum flokki karla, þeir Arnar Freyr Vigfússson (2006), Gunnar Nelson (2007) og Sighvatur Helgason (2008) eru skráðir til keppni, en Gunni hefur t.d. ekki tekið þátt í mótinu síðan 2007 vegna æfinga og keppna erlendis. Það er því gríðarlega spennandi mót í vændum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..