
Þeir eiga eftir að sýna okkur mikið af nýjum hlutum og erum við afar þakklátir að fá þá í þjálfarahópinn.
Planið er að hafa tvær “takedown” og “kast” æfingar/daga í mánuði í haust. Æfingarnar fara því fram annan hvern miðvikudag og munu þeir skipta þeim á milli sín. Þetta verður góður undirbúningur fyrir Norðurlandameistaramótið og Íslansmeistaramótið í BJJ.
Mjölnir fagnar því svo sannarlega að fá þessa tvo í sinn þjálfarahóp!
Hérna er smá myndskeið af Bjarna Skúla á nokkrum mótum hérna heima… http://www.youtube.com/watch?v=Jp8qhkCsObg