Mjölnir vekur athygli á frábærum æfingabúðum með John Kavanagh í Mjölni um næstu helgi. Eins og flestir vita þá er John einn virtasti BJJ og MMA þjálfari í Evrópu og svart belti í BJJ undir Matt Thornton en John var fyrsti Evrópubúinn til að taka svart belti innan SGB International. John var þjálfari Árna “úr járni” Ísakssonar og Gunnars “shotgun” Nelson á meðan þeir dvöldu á Írlandi og kepptu sem atvinnumenn í MMA.
Þetta er því tækifæri sem enginn vill missa af!
Föstudagur 18. janúar
19:00-21:30 Mixed Martial Arts
Laugardagur 19. janúar
10:00-13:00 Brazilian Jiu Jitsu - NoGi
(Klukkutíma matarhlé)
14:00-17:00 Brazilian Jiu Jitsu - NoGi
Verð
3.000 kr. - MMA
6.000 kr. - BJJ-Nogi
7.500 kr. - ALLUR PAKKINN
TAKMARKAÐUR FJÖLDI Á NÁMSKEIÐIÐ!
Skráning í Mjölni og á mjolnir@mjolnir.is