Ágætlega ‘kúl’ að gera svona Bujinkan stæl, þ.e.a.s. stíga inn (jafnvel með léttu sparki að innanverðu hné), vippa innanfótarsparki í klof og sparka út með í Uchi Mata og/eða veiða afturfyrir í Uchi Gake; þá helst fylgja með í falli og lenda með - minnst - annað hné beint í hreðjarnar. Tja, svona í leikaraskap…;-)
Ef maður vill gera þetta með hrottalegum ninja style :) Sem betur fer er búið að hreinsa mest allan soran úr júdóinu og gera það “clean”. Enda myndi maður ekki vilja keppa þar sem brútal ninja style brögð væru leyfileg.
Heh, heh og ágætt að hafa Júdóið eins og það er, enda kvarta fáir yfir því…
Annars fljótum við ninjurnar nú eitthvað á því hversu lítið er keppt í okkar aðferðum og nokkuð erfitt er að sannreyna hversu vel allt draslið virkar…;-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..