Hann er rosalega fimleikalegur í útliti allavega.
Hann byrjaði að æfa kickbox einn í bílskúrnum heima hjá sér þegar hann var táningur eftir að hafa séð myndina “Bloodsport” með Van Damme. Um leið og hann sá hana þá vissi hann að þetta var það sem hann vildi gera i lífinu. Það var ekkert gym í nágrenninu þannig að hann rimpaði saman sínum eigin boxpoka, og bjó sér til lóð með því að hella steypu í fötur og stinga járnröri ofan í steypuna áður en hún harðnaði…..hann æfði eftir bókum og myndböndum í nokkur ár aður en hann steig í fyrsta skiptið inn í alvöru gym.