Hehe…..ég átti þetta víst skilið.
En það sem ég meinti er að fyrir hverja 1 mynd sem maður sér af TKD mönnum í sparring sér maður svona 20 af þeim í einhverjum heljarinnar akróbatík úti í guðsgrænni náttúrunni. OG ÞAÐ ER EKKERT AÐ ÞVÍ! Bara dáldið silly.
Sérstaklega þegar maður sér að það er að öllum líkindum hroðalega kalt þegar þessi mynd var tekin og ekki kannski það skynsamasta í heimi að vera sprangandi um íslenskt urð og grjót í næfurþunnum TKD galla….
Ef hann hefði verið í solid Judogalla þá væri þetta allt annað mál, þeir eru hlýir og notalegir :D
Ekki stressa þig um of Hwarang minn, þetta er bara góðlátlegt grín. Bæði Royce Gracie og Ken Shamrock hafa orðið fyrir svipuðu fyrir svona pós myndir á ýmsum spjallsíðum þannig að ég er ekkert að grínast í TKD sérstaklega….