Já já ég er ekkert að segja að þetta hafi verið rangur dómur. BJ vann fyrstu lotuna og GSP hinar tvær. Reyndar spurning hvort fyrsta lotan hefði átt að fara 10-8 og láta þetta enda sem jafntefli, ég veit ekki. Þetta var allavega voða close.
BJ er svo misjafn, stundum mætir hann í bardaga tilbúinn til leiks og er þá besti MMA maður í heimi. En stundum mætir hann hálf áhugalaus eins og á móti Jens Pulver og núna GSP og er þá náttúrulega líka hættulegur, en ekki næstum því eins öflugur og þegar hann er gíraður upp fyrir þetta.