Fedor hefur sagt í viðtölum að hans viðhorf til bardaga sé alltaf það sama - hann á fjölskyldu, hún þarf að borða og sá sem stendur á móti honum í hringnum sé að reyna að koma í veg fyrir það….
Það er mikil fátækt í Rússlandi, og Fedor er að gera það mun betra í Pride en hann gæti gert í venjulegri vinnu. Í hans huga snýst þetta ekki um frægð og frama eða að vera milljóner…hann er bara að reyna að vera besti eiginmaður og faðir með því að gera það sem hann gerir best. Hann er held ég egó-minnsti fighter sem þú getur fundið. Að lumra á andstæðingum er bara það sem þarf að gera. Hvorki meira né minna.