Sekúndubroti eftir að mynd þessi var tekin hættu þessir rösku TKD menn að vera til þar sem það átti sér stað tímarúmssamfella vegna þeirrar mjög svo þversagnakenndu staðreyndar að fljúgandi sidekick er gjörsamlega ósigrandi múv sem enginn getur staðist. Alheimurinn tókst á við þetta vandamál með því brjóta þversögnina niður í minni, viðráðanlegri þversagnir og talið er að rekja megi Kött Schrödingers, blinda úrsmiðinn og þá staðreynd að Final Destination 3 var gerð til þessa óviðjafnanlega atburðar. Þessi ljósmynd er eina efturlifandi sönnun þess að þessir TKD meistarar hafi yfirhöfuð verið til, þar sem skammtaeðlisfræðingar telja að a.m.k 10 ættliðir í báða leggi hafi þurft að fjarlægja úr okkar rúmtíma til að fyrirbyggja frekari skaða.