Djöfulsins skrokkur var Andy Hug meðan hann var upp á sitt besta! Það er einhvernveginn furðulegt til þess að hugsa að þessi fílhrausti og þrautþjálfaði íþróttamaður hafi dáið úr hvítblæði einungis 35 ára gamall….K-1 hefur varla beðið þess bætur að mínu mati. Árin þegar Hug, Hoost, Aerts og Bernando voru upp á sitt besta og Cro-Cop og Hunt ennþá að keppa voru best…Eftir 2000, árið sem Hug dó hefur K-1 verið einhvernveginn miklu meiri sirkus og ekki þessi “elite kickboxers” keppni sem að hún var. K-1 MAX er miklu meira spennandi að mínu mati.