Mig langaði að spyrja hvort einhvert þekkti þessa íþrótt sem á að fara kenna í Heilsudrekanum í Síðumúla. Mér skilst að þetta sé sambland af leikfimi og bardagaíþrótt. Vona að einhver geti uppfrætt mig, kv, angie
Fyrst þú segir að þetta sé blanda af leikfimi og bardagaíþrótt þá grunar mig að þetta sé Tai Chi. Í stuttu máli er Tai Chi röð hreyfinga til að auka orkuflæðið (Qi energy) í líkamanum. Qing, kona sem vinnur í Heilsudrekanum, sagði mér að hún ætti von á Wu Shu/Kung Fu meistara (konu), frá Kína til að kenna í Heilsudrekanum, í ágúst eða september og að hún myndi vera hér í allavegana eitt eða tvö ár.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..