Já, mín skoðun er sú að Árni klári þetta í fyrstu lotu. Þessi andstæðningur á lítinn sjens í gólfinu gegn Árna og jafnvel enn minni standandi held ég. Hef horft á hann lenda nokkrum höggum og þrátt fyrir að hann sé nokkuð massaður er hann ekki nógu höggþungur til að rota Árna (enda fáir til sem það geta) og ekki með eins góða tækni og Árni. Held þetta verði “auðveldari” bardagi fyrir Árna en fyrri bardaginn hjá honum í ProFC. En maður skyldi þó aldrei vanmeta andstæðinginn og Árni gerir það ekki. Hann kom til mín daginn áður en hann fór út til John að undirbúa sig og var mjög vel stemmdur.