Það er ekki verið að “henda” Mjölni eitt eða neitt. Það hefur alltaf verið ljóst milli Mjölnis og leigusalans að Mjölnir yrði ekki þarna til langframa. En hafið engar áhyggjur. Mjölnir mun ekki fara langt og við höfum nú þegar úr nokkrum mjög spennandi möguleikum að velja. Mjölnir mun halda áfram að vaxa og dafna og rétt eins og það var til þroska fyrir félagið þegar það flutti úr Ármúlanum niður á Mýrargötu þá verður sama uppi á teningunum hér. Þetta mun verða til þess að Mjölnir verður enn öflugra félag. Það eru spennandi tímar framundan.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..