Fallaxarhengingin sem Magomed náði á Árna í fyrstu lotu leit út fyrir að vera alveg rosalega þétt. Og þegar hann hélt haustakinu jafnvel þó Árni væri næstum kominn á bakið á honum…og þvingaði hann svo inn í fallöxina aftur OG náði full guard, þá reif ég í hárið á mér og skrækti smá. En auðvitað hefði maður ekki átt að efast um Árna eitt augnablik. það er ekki eins og hann þurfi súrefni til að lifa eða neitt.
Epísk frammistaða og verulega sannfærandi!
Svo var ég að skoða næsta andstæðing og sá er aldeilis í vondum málum held ég :)