Eddie Bravo er búinn að gera mjög mikið fyrir sjálfan sig - hann er algerlega skammlaus sjálfsframapotari(self-promoter), en ekki nándar nærri því eins mikið fyrir BJJ eins og hann sjálfur vill meina.
Hann er fínasti grappler og gæti örugglega hafa afrekað mun meira ef hann hefði nennt að keppa, en þeir sem eitthvað þekkja til BJJ senunnar og fylgjast með mótunum vita að 10th Planet er alls ekki stórt samband, hefur ekki unnið til neina stórra verðlauna, og þessi svokölluðu “nýju” múv hans Bravo eru ekki að gera neinar svaka gloríur á þeim mótum. Það er auðveldlega hægt að týna til sögunnar 20-30 brassa jafnt sem bandaríkjamenn sem hafa gert meira fyrir BJJ á síðastliðnum áratug. Bravo er ekkert meira spes en aðrir nema hvað hann er ofboðslega flinkur að auglýsa sig.
Passaðu þig að falla ekki fyrir auglýsingahæpinu - mest af lofinu sem ausið er yfir Eddie Bravo á netinu kemur frá hans eigin nemendum eða þá bara honum sjálfum!