Já, verst að hann náði ekki að fylgja því eftir og klára bardagann. Ég á enn eftir að sjá þriðju lotuna en mér fannst þetta í járnum eftir tvær lotur. Að mínu mati var þá jafnt á stigum, Besouro vann fyrstu lotuna en Árni aðra lotu. Og miðað við það sem ég hef heyrt um þá þriðju þá hefði ég talið að Árni hefði átt að fá dómaraúrskurð sér í hag í stað þessa að tapa eins og úrskurðað var. En eins og ég sagði þá á ég enn eftir að sjá þriðju lotuna.