Munurinn liggur að öllum líkindum (án þess að ég hafi einhvern aðgang að ársreikningum íþróttafélaganna, þetta er bara svona “educated guess” sem hagfræðinemi) að mestu leyti í því að Mjölnir, ólíkt þeim klúbbum sem stunda viðurkenndar Ólympískar íþróttir eins og Júdóklúbbarnar gera, fær enga peninga frá ÍSÍ eða öðrum batteríum sem hafa aðgang að almannafé. Þau félög sem geta boðið upp á mun ódýrari æfingar eru s.s niðurgreidd(subsidized). Kostnaðurinn er meiri, en sá sem nýtir sér þjónustuna þarf ekki að horfast í augu við allan kostnaðinn þar sem hluti af honum er greiddur af þriðja aðila, og í raun á endanum af hinum almenna skattgreiðanda.
Þeim sem finnst að Mjölnir sé of dýrt félag að æfa hjá, og ég viðurkenni alveg að fyrir marga í þjóðfélaginu í dag þá er þetta aaaalveg í hæsta lagi að ráða við, þá væri það fínt ef þið gætuð swingað einhverjum aðgangi að ríkiskassanum :D