Kenny Baker yfirþjálfari hjá SBG South West í Englandi er kominn til landsins og verður hér a.m.k. næstu tvær vikunar við þjálfun og æfingar í Mjölni. Kenny er með brúnt belti í BJJ og hefur jafnframt hefur keppt sem atvinnumaður í MMA. Kenny mun rúlla með nemendum í Mjölni og aðstoða við þjálfun eftir þörfum en Gunni mun m.a. sjá um mikið af þjálfun hjá Mjölni fram að áramótum að minnsta kosti. Nánari upplýsingar um Kenny má sjá í frétt frá því að hann kom að kenna í Mjölni í apríl síðastliðnum.