Þú ert að tala um Harald Þorsteinsson og mig minnir að hann hafi verið að tala um að hann væri brúnt belti eða að fara að taka brúnt. Hann er undir Charles Gracie. Miðað við jitsið hans þá held ég varla að hann sé kominn með svart, en hvað veit maður. Samkvæmt Student Rankings á
vefsetri Charles Gracie er hann hins vegar með fjólublátt. Þessi Student Rankings voru uppfærð 25. ágúst 2009 og því frekar ósennilega að Haraldur sé kominn með svart síðan þá. Nema hann hafi hlaupið all svakalega hratt yfir það brúna ;)