Vegna mikillar aukningar nemenda í haust hefur Mjölnir ákveðið að fjölga tímum í stundatöflu um tvo. Bætt hefur verið við einum tíma á mánudögum kl 21:00 og öðrum á miðvikudögum á sama tíma. Báðir tímarnir eru byrjendatímar í BJJ.

Tilgangurinn með þessum tímum er að dreifa hópnum. Það eru of margir byrjendur í tíma í einu núna svo bætt er við þessum tveimur.

Nánari upplýsingar um þetta eru hér: http://mjolnir.is/wordpress/?p=212