Sælir allir
Mér var bent á þennan þráð.
Ég ætla að byrja með Kendóið aftur í haust. Um miðjan september líklegast. Hef þegar sett mig í samband við nokkra sem hafa æft þetta áður, en ég mun að öllum líkindum líka taka byrjendur. Er með 2 dan, próf sem ég tók í Japan 1997. Þeir sem hafa áhuga, endilega sendið póst á solvi@skjarinn.is. Ég get ekki farið af stað með nema max 20 manns í einu, en það er þó möguleiki á að tvískipta námskeiðunum ef áhuginn verður mikill. Ég get lánað þann útbúnað sem þarf til að byrja með.
bestu kveðjur
Sölvi