Dana White var víst spurður út í þetta og hann sver og sárt við leggur að Kimbo sé þarna á nákvæmlega sömu forsendum og allir aðrir, þ.e hann fær ekkert borgað fyrir að mæta og búa í húsinu, og ekkert fyrir bardagana annað en þessa stöðluðu bónusa fyrir knockout eða submission. Þeir vildu ekki fá hann inn á neinum öðrum samning, eða leyfa honum að taka þátt í UFC án þess að sýna að hann væri þess verðugur með því að taka þátt í TUF. Hann þarf að sanna sig eins og allir aðrir.
Aftur á móti þá viðurkenndi hann fúslega að EF að Kimbo vinnur seríuna þá fái hann betri samning heldur en þennan staðlaða TUF samning vegna síns “drawing power”.