Ótrúlegt en satt þá hef ég lent í þessu einu sinni, þó ekki í svona “proper” slagsmálum heldur sem dyravörður. Vorum þrír ofaná snarvitlausum Pólverja sem ætlaði ekki að liggja kyrr þannig að ég tók laust rear naked choke á hann til að sýna honum að okkur væri alvara, og maðurinn fór bara að tappa eins og ritvél.
Spjallaði við hann eftir að löggan var komin og farin og slagsmálin liðin hjá, fínasti gaur, æfði Judo heima í Póllandi, enda var andskotanum erfiðara að drösla honum og félögum hans út af Viktor, hann var alltaf að bregða fæti fyrir mann ;)
Bætt við 15. apríl 2009 - 02:10
P.S ekki reyna að færa Judo mann frá A til B án samþykkis hans nema algera nauðsyn beri til. Þeir eru staðnari en nívetra forysturolla.