Svo líka virðist hann bara vera orðinn…æ ég veit ekki, ekki beint tjónaður, heldur meira svona snjáður. Þó svo að Wandy sé ekkert svo gamall eða með tonn af alvarlegum meiðslum á bakinu þá hefur hann verið í MMA heillengi, í mörgum hörðum bardögum, algerum “wars”, og ég held að menn eigi bara ákveðna innistæðu á þeim reikningi áður en þeir fara að dala, og þeir sem byrja ungir einfaldlega verða lúnir fyrr…
Eins með Nogueira. Hann var nú aldrei sneggsti maðurinn í Pride, en það er búið að lemja hann svo mikið í hausinn og tjóna hann á allan hátt(Bob Sapp brákaði á honum bakið árið 2001 for chrissakes) að hann er orðinn slooooow.