ROFL ég geri ráð fyrir að þú sért að tala um “ULTIMATE SUBMISSION!!!” Vel steikt stöff það.
Ég er ekkert að segja að þetta sé ekki sexy, auðvitað er það það, en mér finnst þetta bara vanvirðing við sportið í heild sinni, þar sem ég er mikil fan bæði kvenna og karla MMA. Hlýtur að sökka fyrir stelpurnar sem leggja á sig alveg jafn mikið erfiði við að verða virkilega góðar og keppa í alvöru að svona dúkkulísur geti fengið jafnmikla ef ekki meiri athygli bara með því að fara úr brjóstahaldaranum. Hvaða skilaboð er það að senda?
Ég er fylgjandi algeru frelsi í sambandi við klám, vændi o.s.frv, en helst myndi ég vilja halda mínu klámi og bardagalistum aðskildum, virkar betur þannig :)