Jamm, en svo vilja menn líka stundum fá almennilegt challange. Allavega sumir. En ég er sammála þér um Fedor, þ.e. að sennilega myndi hann taka HW flokkinn hvar sem er. Þó eins og ég hef áður bent á held ég að Randy ætti góðan sjens í hann í búrinu. Hins vegar velti ég því fyrir mér hvort Dana telji að Lesnar taki Randy í bakaríið. Lesnar bætir sig með hverjum bardaga og gæti hæglega orðið besti HW á stuttum tíma. Hann er líka ári yngri en Fedor og 14 árum yngri en Randy. Sannarlega flottur framtíðar HW fyrir UFC og hann væri eftir einhvern tíma alveg til í að mæta Fedor þykist ég vita. Og ekki hræddur við hringinn.