Shit ég ætlaði að svara þér en ýtti óvart á eyða (það er ekki einu sinni nálægt hvort öðru var bara að flýta mér SORRY!!!)
En ok Hwarang var að tala um Sigurstein Snorrason og að hann hafi lagt mikið í Fjölnir og mikið af eigin vinnu og pening til að fá það upp og setja það á laggirnar vegna ástar á íþróttinni. (endilega póstaði þessu aftur sjálfur þetta var alveg hræðileg mistök).
En ok svarið mitt var (af því þú tókst það fram að Jimmy væri pottþétt ekki besti þjálfarinn og nefndir síðan þetta um Sigurstein). Þá vildi ég bara benda á að þegar Jimmy opnaði staðinn sinn um mitt ár 2000 þá seldi hann flotta sportbílinn sinn (held hann keyri ennþá á gömlum smábíl núna) seldi fullt af dótinu sínu og keypti húsið í heild og var nánast aleinn við að byggja það algjörlega upp og redda tækjum og fleiri hlutum á staðinn. Hann hefur lagt MIKLA vinnu í staðinn, reif niður veggi byggði kvennaklefa með sturtum og öllum pakkanum hann gerði nánast ALLT þarna sjálfur, fékk að sjálfsögðu oft hjálp við ýmislegt en þetat er allt sem hann gerði sjálfur, þannig mér finnst nú ósanngjarnt að gefa til kynna að Jimmy sé með einhverja minni ást á íþróttinni en hver annar þegar hann leggur allt að veði til að gefa nemendum sínum betri aðstöðu (þetta kom í framhaldi af því að Jónína Ben keypti GYM80 þar sem jimmy var að kenna og fór að færa milli staða og ráðaskast eitthvað með þetta).