Tito er svekktur því hann veit að dýrðardagar hans eru liðnir.
Rosa gaman að heyra hann væla um hvað Zuffa borgar öllum illa og hvernig hann er að reyna að spila sig sem einhvern krossfara fyrir litla manninn á undercardinu, þegar hann krafðist þess árið 2003 trekk í trekk að UFC borgaði honum svimandi upphæðir fyrir að slást við Chuck, jafnvel þó svo að það þýddi að undercard gaurarnir fengu minna borgað en venjulega því að “allir eru komnir til að sjá mig og Chuck, ekki hina”…þá var lítið um miskunsama Samverjann.
Tito segir hvað sem kemur honum best hverju sinni til að græða eins mikið persónulega og mögulegt er.
Það sem ég verð glaður að sjá Machida rústa þessum vindbelg og ég þarf ekki að horfa á hann í UFC nokkurntíman framar.