Kerr ætti að hætta að reyna að berjast í MMA - hann var aldrei með rétta hugarfarið í sportið. Þessvegna þurfti hann að dópa sig upp á sterum og verkjalyfjum til að geta keppt. Það snérist ekki bara um að vera sterkari, heldur líka að deyfa stressið og pumpa upp árásargirnina því að Mark Kerr er inn við beinið viðkvæm sál sem á ekkert erindi í hringinn.
Sem er allt í lagi, flestir í þessum heimi eiga ekkert erindi þangað heldur(þ.m.t ég!), og þeir sem hafa horft á Smashing Machine vita hvað ég er að meina.
Mér hefur alltaf þótt frekar vænt um Kerr, hann virkar alltaf sem virkilega indæll og elskulegur gaur utan hringsins, þetta steratröllslíf hentaði honum engan veginn, og ég óska honum alls hins besta í fasteignabransanum.