Áhugavert að lesa þetta hjá þér félagi þar sem ég verð að viðurkenna að mér fannst Hr. Kimbo nokkuð áhugaverður; hva, þetta fyrir ca. 2-3 mánuðum þegar ég tók fyrst eftir honum og fylltist áhuga þar sem hann virtist koma úr annarri átt en hvað víða þekkist.
…En eftir að hafa séð þennan bardaga, finnst mér þetta farið að hallast of mikið í áttina að ‘Pro Wrestling’ (a lá ‘very fake’), en það væri svosem byggt á tilfinningu frekar en öruggum heimildum. Þó það nú; kannski er það bara ég og hversu lítið ég er inná þessu…;-)
…Og samkvæmt málefni þínu að ofan, verð ég að segjast sannfærður um að eitthvað sé hálf-undarlegt við þetta alltsaman, svona í samanburði við hvaðannað sem ég hef séð. Spurning hvort aðfarir - og keppnismat - EliteXC séu farnar að hyggja ívið meira að skemmtiefni heldur en heiðarlegur bardögum…???
Kv,
D/N
Í dag æfir Nekron helling…