Já, og eins og ég sagði á Mjölnisspjallinu þá vara ég menn við því að gerast of cocky fyrir Gunnars hönd þó vel hafi gengið so far. Sjálfur er Gunnar algjörlega með báða fætur á jörðinni. Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem hann er talinn sigurstranglegri áður en hann fer í hringinn en hann mun ekki vanmeta Barry. Enginn bardagi er léttur og Barry sýnir það á myndbandinu að hann getur vel rotað menn. Hann er vel þjálfaður enda sérsveitarmaður í breska landgönguliðinu.
Þá er ég nú líka bara þeirrar skoðunar að flestir þeir sem eru tilbúnir að stíga inn í hringinn í full contact íþrótt eigi virðingu skilið fyrir það.