Já og hér er að mínu mati besta og lengsta videoið sem sýnir “góða” Krav Maga þjálfun, beint frá Ísrael…
http://www.youtube.com/watch?v=0i7N6Y7OYwIÞað góða: Virðast vera frekar erfiðir tíma, mikið svitnað, sæmilega mikið contact á púðunum, örugglega fínt fyrir þá sem að eru ekki vanir því að slá frá sér. Einnig greinilega lögð mikil áhersla á meðhöndlun skotvopna, sem eru náttúrulega miklu betri sjálfsvarnartól en lúkurnar nokkurntímann. Ekki ætla ég að dæma um gæði skotvopnakennslunnar þar sem ég hef litla sem enga reynslu af meðhöndlun slíkra drápstóla(Jón Viðar?) Flott líka að sjá að þeir notuðu paintball byssur í svona hálfgert “gun disarm sparring” undir lokin - það ætti að gefa mönnum góða hugmynd um hversu erfitt það er að afvopna byssumann án þess að verða skotinn í leiðinni. Ágætis reality check þar.
Það slæma: Nánast engin tæknikennsla sem ég gat séð. Menn virðast bara eiga að slá frá sér “svona frá sjálfum sér”, og finnst mér mesta furða að þessi pad training sem gaurinn var að gera hafi ekki leitt af sér allavega eitt úlnliðsbrot, þar sem oft var hann að slá afar skakkt á púðann - sloppy ef þú spyrð mig, og þjálfarinn var ekkert að leiðrétta það. Með kannski svona 6 mánuðum af box-þjálfun meðfram Krav Maga gæti þessi gaur margfaldað virkni högga sinna.
Einnig set ég frekar marga fyrirvara við þessi hnífa disarms, og tvöfalt fleiri fyrirvara við þessi byssu disarms. Það er kannski hugsunin að ef þú lendir í þessari stöðu þá sé betra að allavega REYNA að afvopna andstæðinginn heldur en að gera ekki neitt, en ég ætla rétt að vona að kennararnir taki það skýrt fram að líkurnar á því að sleppa lifandi eða óslasaður úr svona aðstæðum eru hverfandi, jafnvel á góðum degi þegar allt gengur upp. Of mikil meðvirkni hjá árásarmönnunum einnig.
Svo er það náttúrulega stærsti gallinn - stórann hluta af þessu námsefni(skotvopn) er ekki hægt að æfa á Íslandi vegna lagaumhverfis í sambandi við felanleg skotvopn. Byssumeðferð er náttúrulega uppistaðan í Krav Maga(ekki handalögmál, þau eru meira svona “weapon of last resort”), og maður verður að spyrja sig hversu mikið erindi hnífa og skotvopna disarms hafa við meðal íslending, þar sem líkurnar á að lenda í útistöðum við menn vopnaða þessum vopnum eru hverfandi…
Einnig skal taka það fram að þetta KM video er frá Ísrael, þar sem KM er “ekta” - eftir öllum mínum heimildum þá eru flestir þeir sem eru að kenna Krav Maga t.d í USA ekki að gera það af fullum heilindum, og margir vita bara alls ekki hvað þeir eru að gera. Ísraelski herinn, IDF, er ekkert að fylgjast með hverjir eru að kenna KM utan Ísrael - þeim finnst það ekki koma þeim við þó að einhverjir steli nafninu og noti trúverðugleika IDF(eins besta hers í heiminum í dag) til að selja einhverskonar samkrull af lélegu Muay Thai og gamaldags japönsku jiu-jitsu. Almennt álit þeirra sem fylgjast með svona hlutum er að stór meirihluti KM kennara í bandaríkjunum sigli undir fölsku flaggi. Þeir hafi í rauninni aldrei æft KM heldur stela einfaldlega nafninu til að selja tímana sína því að IDF mun ekkert fara í mál við þá.
Þannig að ef þú ætlar að kynna þér þetta nánar…farðu varlega. Mín persónulega skoðun er sú að svona prógramm hafi nánast ekkert erindi við hinn almenna borgara, gæti hugsanlega verið nytsamlegt fyrir lögreglumenn, lífverði og aðra atvinnumenn sem hafa sterkann bakrgrunn fyrir í handalögmálum, og kunna að meðhöndla skotvopn.